Skilmálar

Með því að panta vörur hjá Boett-Iceland samþykkir þú eftirfarandi skilmála:

Verð og greiðslur

  •  Verð á vörum hjá Boett-Iceland er staðgreiðsluverð með 24% virðisaukaskatti.
  • Hægt er að greiða með millifærslu.
  • Þegar valið er að greiða með millifærslu hefur viðskiptavinur 2 sólarhringa til að millifæra fyrir pöntuninni. Ef greiðsla hefur ekki borist fyrir þann tíma verður pöntunin ógilt og vörurnar fara aftur í sölu.
  • Öll verð eru í íslenskum krónum og eru birt með fyrirvara um prentvillur. Boett-Iceland áskilur sér rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð eða röng mynd fylgt vörunni á vefsíðunni.
  • Boett-Iceland áskilur sér þann rétt að breyta verði á vörum fyrirvaralaust.

Sendingarkostnaður

  • Sendingarkostnaður bætist við pöntun áður en greiðsla fer fram. Sendingarkostnaður er 250 krónur fyrir pöntun milli 0-5.000 krónur. Enginn sendingarkostnaður er fyrir pantanir sem fara yfir 5.000 krónur. Hægt er að velja um að fá vörur sendar með ábyrgð og kostar það 990 krónur.

Afhending vöru

  • Þegar greiðsla hefur borist eru pantanir sendar með Íslandspósti innan tveggja virkra daga og má gera ráð fyrir að það taki Íslandspóst 1-4 virka daga að bera út sendingar til viðskiptavina.
  • Um allar pantanir sem fara með Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Samkvæmt því ber Boett-Iceland enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi og er tjónið á ábyrgð kaupanda verði vara fyrir tjóni eftir að hún er send frá Boett-Iceland. Hægt er að sækja vörur samkvæmt samkomulagi.
  • Gætið að því að póstkassar og póstlúgur séu rétt merkt og þegar pöntun er gerð að hafa nafn og heimilisfang eins ýtarlegt og kostur er.

Vöruskil

  • Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð og í fullkomnu lagi þegar henni er skilað. Við skil á vöru er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneignarnótan er í formi kóða sem er notaður hér á síðunni þegar verslað er og gildir í eitt ár frá útgáfudegi. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Ef kaupandi velur að senda vöru sem hann vill skila, greiðir hann sjálfur sendingargjaldið til Boett-Iceland.

Gölluð vara

  • Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðir Boett-Iceland allan sendingarkostnað sem um ræðir.
  • Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup.

Trúnaður

  • Boett-Iceland heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Lög og varnarþing

  • Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál hans vegna skal það rekið fyrir Héraðsdómi Suðurlands.
Hafa samband: boett@simnet.is